|
Í dag
er 6. maí og ég er farin að hafa áhyggjur af því hvort að kóramótinu verði. Það
eru nokkrir búnir að hafa samband við mig og segjast ætla að koma en til að
skipuleggja mótið almennilega þurfum við að fá svona nokkurn vegin fjölda
þátttakenda. Einnig hvort fólk ætli að búa í heimahúsi, gista í skólanum eða
vera á tjaldstæðinu.
Við ætlum að syngja með í fjöldasöng
á fimmtudagskvöldinu síðan verða æfingar á föstudeginum og verða bæði sungin
lög fyrir barnakóra, stúlknakóra og blandaða kóra. Á föstudagskvöldið er
meiningin að halda grillveislu við Borgarhólsskóla en hafa síðan tónleika á
laugardagseftirmiðdag.
Ég minni
á tölvupóstinn minn og vona að þið sem einu
sinni voruð vinkonur í kór á Húsavík látið heyra í ykkur. Kveðja Hóffý.
Ég stefni að því að halda kóramót á Mærudögum á Húsavík næsta sumar vegna 30 ára kórstjórnarafmælis míns.
Það er von mín að sem allra flestar stelpur sem sungið hafa í kórum hjá mér komi og heimsæki gamla bæinn okkar. Taki þátt í kóramótinu og þeim skemmtunum sem Mærudagar hafa upp á áð bjóða. Þar sem ég hef ekki verið nógu dugleg að halda dagbók um allar kórferðirnar sem við höfum farið í þá væri gott að áhugasamir skrifuðu mér á netið því gaman væri að fá kellur frá sem flestum ferðum. Það er einhvern veginn þannig að þegar maður er kominn á sextugsaldurinn þá fer það sem skeð hefur að skipta meira og meira máli. Ég á sem betur fer bara góðar minningar eftir í huganum um allt þetta kórastarf en sjálfsagt hef ég allt of oft öskrað á ykkur og þarf ég að biðja fyrirgefningar á því. Í mínum huga sungu kórarnir best þegar við fórum til Þýskalands en það var árið 1997. Svo var líka frábær árangur á kóramóti á Akureyri en þá var Aðalheiður Þorsteinsdóttir í kórnum. Hún ætlar einmitt að koma og spila með okkur. Það er allt í lagi þó þið hafið ekki verið að syngja eftir að þið komuð á fullorðinsár. Látið það ekki á ykkur fá ef áhugi er fyrir hendi á að koma og heimsækja Víkina þá endilega látið vita. Netfang mitt er hoffy@visir.is Það eru nokkrir hugrakkir drengir sem hafa tilheyrt barnakórastarfseminni. Síðastur var Hjálmar Bogi Hafliðason. Síðan var kórnafninu breytt í Stúlknakór. Að sjálfsögðu eru þessir fáu karlar velkomnir.
Hóffý |